Forsíða
Hlaupið
Jökulsárhlaupið fer fram í stórkostlegu umhverfi Jökulsárgljúfra í Vatnajökuls-þjóðgarði. Hlaupið hentar hvort sem er reynslumiklum langhlaupurum sem og þeim sem vilja takast á við utanvegahlaup í fyrsta sinn, þar sem í boði er að hlaupa þrjár mismunandi vegalengdir: 32,7 km, 21,2 km og 13,2 km.
Lagt er af stað frá mismunandi stöðum fyrir hverja vegalengd en öll
hlaupin enda í Ásbyrgi.
Óhætt er að segja að þessi hlaupaleið eigi engan sinn líka hvað varðar umhverfið. Öll leiðin liggur um stígakerfi þjóðgarðsins. Hlaupið er um hrjóstuga mela og grófar klappir, eftir moldargötum í grónu landi og eftir göngu-/fjárgötum í gróskumiklum birkiskógi. Lokaleggur allra leiðanna liggur meðfram barmi Ásbyrgis, þeirri náttúrusmíð sem talið er að Jökulsáin hafi grafið í stórkostlegum hamfarahlaupum.
Þjónusta
Aðstandendur hlaupsins leggja metnað sinn í að hlauparar geti notið hlaupadagsins til fulls og innifalið í skráningargjaldinu er margskonar þjónusta. Rútur flytja hlaupara að upphafsstað. Á hlaupaleiðinni eru sjö drykkjarstöðvar auk þess sem ferskir ávextir og gosdrykkir eru í boði í marki. Leiðin er vel merkt og öryggisgæsla er þar sem hlaupaleiðin fer fram hjá gljúfurbörmum eða önnur ástæða þykir til.
Upplýsingar
Vantar þig upplýsingar um gistimöguleika á svæðinu? Eða tókstu þátt fyrir þremur árum og átt von á að finna mynd af þér í myndasafninu? Langar þig til að fræðast meira um Vatnajökulsþjóðgarð. Langar þig að vita upphafssögu hlaupsins? Kíktu þá við hér!






