Mæting á hlaupastað
Á hlaupadaginn þurfa þátttakendur að mæta í Gljúfrastofu, gestastofu þjóðgarðsins í mynni Ásbyrgis, til að fá hlaupanúmer. Tímasetning mætingar er mismunandi eftir vegalengd sem hlaupin er. Hlauparar eru vinsamlegast beðnir að virða tímamörkin og vera mættir tímanlega. Hægt er að skipta um föt á salernum í kjallara Gljúfrastofu.
Hér er tímaáætlun fyrir mætingu, brottför og upphaf hlaupa:
| Hlaupaleið |
Mæting í Gljúfrastofu |
Brottför rútu |
Hlaupið byrjar kl. |
|
Dettifoss - Ásbyrgi |
08:30 |
9.30 |
11.00 |
|
Hólmatungur - Ásbyrgi |
9.30 |
10.30 |
12.00 |
|
Hljóðaklettar - Ásbyrgi |
11.00 |
12.30 |
13:30 |





