Vegalengdir í boði
Í Jökulsárhlaupinu er hægt að velja um þrjár vegalengdir: 32,7 km, 21,2 km og 13 km.
Lengsta leiðin byrjar við Dettifoss. Millivegalengdin leggur af stað frá Hólmatungum og styðsti leggurinn byrjar við Hljóðakletta.Öll hlaupin enda í Ásbyrgi. Ræst er í hlaupin á mismunandi tíma. Dettifoss hlauparar fara af stað kl. 12.00, frá Hólmatungum er ræst kl. 13.00 og frá Hljóðaklettum fara hlauparar kl. 14.00. Þetta er gert til þess að sem flestir hlauparar komi í mark á svipuðum tíma en einnig til að nýta rútuferðir á rásstaði.
Hér til vinstri má fá nánari lýsingu á hverri vegalengd fyrir sig.





