Beint á leiðarkerfi vefsins
Fara á forsíðu vefs

32,7 km: Dettifoss - Ásbyrgi

Lengsta hlaupaleiðin hefst við Dettifoss og endar í Ásbyrgi. Hlauparar hlaupa meðfram Jökulsárgljúfrum, með Jökulsá á Fjöllum sér á hægri hönd. Eftir um 20 km hlaup, þegar komið er í Vesturdal, liggur leiðin frá ánni, framhjá Hljóðaklettum, inn á Ásheiðina og að Ásbyrgi sjálfu. Lokaleggur leiðarinnar er síðan eftir austurbarmi Ásbyrgis.

Óhætt er að segja að þessi hlaupaleið eigi sér engan líkan hvað varðar fjölbreytni. Hlaupið hefst í hrjóstugu og kraftmiklu umhverfi Dettifoss og endar í gróskumiklu umhverfi Ásbyrgis. Hlaupið er eftir melum, moldargötum, gömlum fjárgötum, yfir klappir, um kjarrlendi og birkiskóg. Stuttu eftir Hólmatungur, þegar hlaupnir hafa verið 14 km, þarf að vaða eina á, Stallá.

Níu drykkjarstöðvar eru á leiðinni: Í rásmarki, norðan Hafragils, í Hólmatungum, við Stallá, við Hljóðakletta, vestan Rauðhóla, við Klappir (Ásbyrgisbotn), við Tófugjá (austan megin á barmi Ásbyrgis) og að lokum í marki.

Ítarlega leiðarlýsingu má finna hér.

Kort af leiðinni og drykkjarstöðvum má nálgast hér.

Dettifoss er í um 350 m hæð yfir sjávarmáli og Ásbyrgi í 38 m hæð. Hæðarfallandi er því um 300 m en leiðin liggur þó ekki öll niður í móti, upp nokkrar brekkur þarf að fara og í gegnum árin hefur brekkan upp úr Vesturdal þótt hörð í horn að taka. Hæðarferilinn má sá á myndinni hér fyrir neðan.

Hæðarferill


Fánar

Information in English

Facebook

Jökulsárhlaup á Facebook