Læknir og hjúkrunarfólk
Í Ásbyrgi verður hjúkrunarfólk, læknir og sjúkrabíll til staðar. Í sögu Jökulsárhlaupsins hafa engin alvarleg óhöpp átt sér stað. Helstu áhættuþættirnir eru að fólk hrasi eða verði fyrir vökvatapi. Seinna atriðið er hægt að fyrirbyggja með því að drekka vel meðan á hlaupinu stendur og strax eftir hlaup.





