Beint á leiðarkerfi vefsins
Fara á forsíðu vefs

Veitingar í Ásbyrgi

Þegar öllum þremur hlaupunum er lokið eru ýmsar veitingar í boði fyrir þátttakendur. Í marki er boðið upp á ferska ávexti, orkudrykki og gos.

Árið 2012 geta þátttakendur valið um hvort þeir hafi mat að loknu hlaupi inni í skráningargjaldi eða ekki. Velji þátttakandi að taka ekki mat, lækkar kostnaður um kr. 1000,- Að þessu sinni verður boðið upp á matarmikla kjötsúpu, brauð og gos. Einnig verður hægt að kaupa sömu veitingar gegn vægu verði - kr. 1500,- fyrir fullorðinn og kr. 1000,- fyrir börn.

ATH - Það er ekki posi á svæðinu svo greiða þarf fyrir veitingar með reiðufé. 


Fánar

Information in English

Facebook

Jökulsárhlaup á Facebook